Vistunarreglur
Verklagsreglur við innritun og vistun leikskólabarna
08.00 09.00 13.00 Brottfarartímar kl.: 12.00 13.00 14.00 15.00 16.00 16.30 Náðarkorter kl.: 07.45 08.45 16.15 Matmálstímar eru eftirfarandi: Morgunmatur kl. 08.00-08:45 Hádegismatur kl. 11:30-12:00. Síðdegiskaffi kl. 14:30. 4 Þar sem foreldrar, sem nýta sér skólaakstur, geta ekki haft áhrif á komu eða brottfarartíma skólabíla er vistunartími leikskólabarna í samræmi við skólaakstur. 5 Forgangshópar (í fyrsta forgangi eru börn í hópi A, svo B og svo koll af kolli) eru: A. Börn sem búa við fötlun, misþroska, ofvirkni eða vegna félagslegra aðstæðna, sem er talið nauðsynlegt að mati félagsþjónustu að fái leikskólavist. B. Börn einstæðra foreldra. C. Börn á síðasta ári leikskólans (5 ára börn). D. Börn starfsmanna leikskólans. E. Börn sérmenntaðra starfsmanna, sem byggðaráð metur að ráðning sé háð leikskólavistun og varði hagsmuni sveitarfélagsins. 6 Þau börn sem fara á forgangslista fara fram fyrir önnur börn á biðlistanum. Við forgang er eins og önnur vistun háð því að laust pláss sé fyrir hendi. Koma þarf beiðni um forgang frá foreldrum annars fer barn ekki sjálfkrafa í forgang. Við úrvinnslu á biðlistum skal viðhafa eftirfarandi vinnubrögð:
7 Einstæðir foreldrar greiða lægra gjald í leikskóla, svo og ef foreldrar eru í fullu námi, sjá gjaldskrá leikskólans. Skilyrði fyrir niðurgreiðslu er að einstæðir foreldrar framvísi á hverju ári vottorði frá sýslumanni eða Tryggingarstofnun ríkisins. Eins er með foreldra í námi, þeir verða að framvísa innritunarvottorði /námsvottorði frá skóla í upphafi hverrar annar. Hefji einstætt foreldri sambúð, skal það greiða hærra gjald, strax og sambúð hefst. Slíti foreldrar sambúð, skal leggia fram vottorð frá sýslumanni og kemur þá til lækkunar á gjaldi. 8 Ef barn er veikt í 2 vikur samfellt, endurgreiðist 1 vika. Ef barn er veikt, umfram 2 vikur samfellt, endurgreiðist gjald umfram 1 viku. Með beiðni um endurgreiðslu ber að framvísa læknisvottorði. Fari leikskólabarn í frí á vistunartíma, t.d. vegna ferðalaga, greiðast leikskólagjöld engu að síður enda ljóst að barnið verður í vistun að leyfistíma liðnum. Fæði er ekki innheimt í leyfum. Vistunarpláss haldast fram yfir sumarleyfi, nema forráðamaður segi því upp. 9 Séu vistgjöld ógreidd í þrjá mánuði er barni sjálfkrafa sagt upp leikskóladvöl. 10 Sækja þarf um skrifleqa ef breyta á vistunartima barns fyrir 20. hvers mánaðar. Breyting á vistun tekur gildi 1. næsta mánaðar. Að öðrum kosti greiðist næsti mánuður eins. 11 Stjórnendur leikskólans fara yfir umsóknina og samþykkja eða hafna henni eftir aðstæðum. Ekki er víst að hægt verði að koma til móts við allar óskir strax. Tilkynna skal skriflega fyrir 20. hvers mánaðar ef sagt er upp leikskóladvöl fyrir barn frá og með 1. næsta mánaðar. |
GjaldskráGjaldskrá leikskólans og allar upplýsingar um afslætti er að finna á eftirfarandi slóð: http://dalir.is/stjornsysla/gjaldskrar/audarskoli-leikskoli/
![]()
|