Skólareglur og ferli agamála
SkólareglurSkólareglur Auðarskóla gilda fyrir alla aðila sem að skólastarfinu koma og allsstaðar þar sem þeir eru á vegum skólans.
A Námið Við mætum stundvíslega, vel undirbúin með þau gögn sem nota skal. Við skulum vinna eins vel og við getum. B Samskipti Skólinn er vinnustaður okkar allra, hver nemandi og starfsmaður á rétt á því að fá frið við leik og störf. Samskipti skulu einkennast af gagnkvæmri virðingu og vinsemd. C Heilbrigði Við tileinkum okkur hollar lífsvenjur. Notkun sælgætis og gosdrykkja er óheimil á skólatíma, nema í undantekningartilvikum með leyfi skólastjóra. Notkun tóbaks, áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð. D Skólalóðin Nemendur yfirgefa ekki skólalóðina á skólatíma án leyfis. Við göngum um skólalóðina okkar af virðingu. Nemendur eru á ábyrgð foreldra utan skólalóðar bæði í og úr skóla nema um skólaakstur sé að ræða. E Ábyrgð Við berum ábyrgð á eigin framkomu og munum að skólinn ber ekki ábyrgð á persónulegum verðmætum, sem komið er með í skólann. Óheimilt er að koma með í skólann þau tæki og tól sem geta valdið skaða. F Umgengni Góð umgengni er í hávegum höfð í Auðarskóla. Við göngum vel um skólann og berum virðingu fyrir eigum hans og hvers annars. Við röðum skóm, göngum frá útifatnaði og hirðum vel um námsbækur og önnur gögn. G Ferðir Í ferðalögum og á skemmtunum skólans eru allar reglur skólans í fullu gildi, nema annað sé tekið fram. Sérreglur Reglur um GSM síma Nemendum í 5. til 10. bekk er leyfilegt að vera með og nota GSM-síma í Auðarskóla. Um notkun og meðferð gilda eftirfarandi reglur: - Símarnir eru á ábyrgð nemenda í skólanum. Tjón vegna þjófnaðar eða skemmda verður ekki bætt af hálfu skólans. - Á ferðalögum og í vettvangsferðum á vegum skólans geta nemendur haft með sér GSM-síma. Hinsvegar verða þeir að hlíta þeim reglum sem starfsfólk skólans setur þeim hverju sinni um notkun þeirra í ferðunum. Í kennslustundum gilda eftirfarandi reglur: - Alls engin truflun á námsaðstæðum nemenda má vera af GSM-símum. - Símarnir skulu vera stilltir á þögn. - Óheimilt er að senda eða lesa SMS í kennslustundum. Kennari getur heimilað notkun GSM-síma í kennslustundum sem hjálpartæki t.d. að nota þá sem vasareikna. Við brot á þessum reglum skal nemandi slökkva á síma sínum og afhenda hann umyrðalaust kennara/starfsmanni skóla. Foreldri þarf að vitja símans í skólann. Við síendurtekin brot og/eða misnotkun á GSM-símum geta skólastjórnendur bannað viðkomandi nemanda að vera með GSM-síma í skólanum í styttri eða lengri tíma. |
Starfsreglur og ástundunarkerfiInngangur
Innan skólans er stöðugt unnið að því að bæta aga og auka aðhald í öllu starfi með það að markmiði að skólastarfið sé skilvirkt og farsælt. Samkvæmt reglugerð nr. 270/2000 um skólareglur í grunnskóla hefur Auðarskóli sett sér skýrar starfsreglur um hvernig unnið er með mál í kjölfar agabrots. Skólinn lítur svo á að það sé sameiginlegt verkefni skólans og foreldra/forráðamanna að standa vel að úrvinnslu agabrota. Foreldrar/forráðamenn skulu ávallt vera upplýstir ef viðurlögum við skólareglum er beitt. Viðurlög miðast fyrst og fremst við það að þau hjálpi nemandanum að bæta hegðun sína eða stöðu, eins og segir um í reglugerðinni, en þar segir orðrétt í 6. grein: ,,Nýta skal til fullnustu allar þær leiðir sem skólinn ræður yfir til að leita lausna og ráða bót á hegðun nemanda. Leita þarf allra mögulegra orsaka innan skólans til að viðurlög verði bæði markviss og komi nemandanum að gagni við að bæta hegðun sína.” Umsjónarkennari ber ábyrgð á og fylgist með því að umsjónarnemendur hans hlíti þeim viðurlögum sem ákveðin hafa verið. Brot á skólareglum eru skráð í Mentor. Viðurlög við skólareglum eiga við nemendur í 6. – 10. bekk. (Foreldrar nemenda í 1. – 5. bekk eru látnir vita ef þeir gerast brotlegir við skólareglur.) Starfsreglur Almennar starfsreglur starfsfólks við brot á skólareglum eru eftirfarandi:
Auðarskóli hefur sett upp viðmið um alvarleika agabrota. Agabrot eru flokkuð í þrjá flokka; gulan, appelsínugulan og rauðan. Flokkarnir eru ekki endanlegt yfirlit yfir agabrot en hjálpa til við að greina alvarleika brota og bregðast við þeim samkvæmt því. Gulur
Verkreglur varðandi einstaka skólareglur Varðandi einstakar skólareglur geta viðurlög verið mismunandi og skal ávallt leitast við að viðurlög komi nemanda að sem mestu gagni við að bæta hegðun sína. Námið: Ef nemandi fellur í ástundunareinkunn úr 10.00 vegna þess að mæting og ástundun er ábótavant er nemanda gefin kostur á því að bæta þar úr. Undirritaður er sérstakur samningur vegna þessa. (Sjá nánar reglur um ástundun.) Samskipti: Í skólanum eru starfsmenn í verkstjórnarhlutverki og verða nemendur að hlíta tilmælum þeirra í hvívetna. Ef samskipti nemenda á milli eða milli nemenda og starfsfólks brjóta reglu um almenna virðingu í samskiptum er brugðist við samkvæmt almennum starfsreglum. Heilbrigði: Ef nemandi verður uppvís að reykingum, neyslu eða sölu áfengis eða annarra vímuefna þarf viðkomandi að sækja fræðslu um vímuvarnir. Einnig má nemandinn eiga von á því að vera vísað úr skóla það sem eftir lifir skóladags eða lengur eftir atvikum. Gosdrykkir og sætindi eru gerð upptæk hjá nemanda á skólatíma, nema fyrir liggi sérstakt leyfi frá skólanum. Skólalóðin: Beiðni þarf frá foreldrum um að yngri börn í 1. – 5. bekk yfirgefi skólalóð á skólatíma. Ef uppvíst verður að yngri nemendur hafi farið af skólalóð í leyfisleysi eru foreldrar barna tafarlaust látnir vita. Eldri nemendur þurfa ávallt að hafa leyfi skólans til að fara af skólalóð á skólatíma. Notkun reiðhjóla, línuskauta, hlaupahjóla og hjólabretta á skólalóð er bönnuð á starfstíma skólans vegna slysahættu. Ábyrgð: Nemendur bera ábyrgð á þeim verðmætum sem þeir kjósa að koma með í skólann og skólinn bætir ekki tjón á þeim verðmætum. Ef komið er með vopn, eggjárn, skotelda og aðra hluti sem skaða geta valdið er slíkt gert upptækt, foreldrum og eftir atvikum lögreglu gert viðvart og viðkomandi getur átt á hættu að vera rekinn úr skóla það sem eftir lifir skóladags eða lengur eftir atvikum. Umgengni: Ef nemandi er uppvís að slæmri umgengni eða sóðaskap þarf hann að þrífa eftir sig. Nemendur skulu ávallt ganga frá útifatnaði og skóm í andyrum skólans. Ef nemendur koma í útifatnaði inn í kennslustundir er þeim gert að fara og setja hann á viðeigandi staði. Ef nemandi veldur viljandi eða með hirðuleysi skemmdum á eignum skólans eða annarra má hann búast við því að þurfa að bæta skaðann. Ferðir: Skólareglur gilda í skólabílum og öllum ferðalögum á vegum skólans. Gerist nemandi sekur um alvarlegt brot á reglum skólans eða landslögum hvar sem hann er staddur á vegum skólans, verður hann, í samráði við skólastjóra, sendur heim á kostnað forráðamanna sinna. Annað starfsfólk, skólabílstjórar og eftir atvikum aðrir kennarar komi upplýsingum um brot til umsjónarkennara svo þeir geti skráð brotið. Við alvarleg og ítrekuð brot á skólareglum getur þurft að grípa til tímabundinnar brottvísunar úr skóla, brottvísunar úr einstökum greinum eða brottvísunar um lengri tíma meðan leitað er úrlausnar mála. Um brottvísun úr einstökum greinum eða brottvísunar í lengri tíma en nemur einum skóladegi gilda ákvæði stjórnsýslulaga. Þar sem viðbrögð við brotum á agareglum eru samvinnuverkefni foreldra/forráðamanna og skóla væntir Auðarskóli þess að foreldrar/forráðamenn verði í góðu samstarfi með að framfylgja skólareglum og viðurlögum við þeim. Við meðferð agabrota er varða landslög er lögreglu og félagsmálayfirvöldum gert viðvart eftir atvikum. Uppfært ágúst 2017 . |