Sérfræðiþjónusta
Um stoðþjónustuÞau börn sem þurfa á sérkennslu/þjálfun að halda fá hana samkvæmt lögum um leikskóla. Í leikskólanum er sérkennsla/þjálfun undir handleiðslu leikskólakennara í samvinnu við fagaðila og eru þeir ásamt leikskólastjóra og deildarstjóra ábyrgir fyrir því að gerðar séu áætlanir vegna barnanna og þeim framfylgt. Í foreldraviðtali er leitað eftir áliti foreldra og rætt um stöðu barnsins í þroska og námi. Ef í ljós kemur að framfarir barnsins eru ekki sem skyldi eða áhyggjuefni foreldra mikil er leyfi foreldra fengið til að sérfræðingur geri formlega athugun á þroska barnsins í leikskólanum með viðeigandi þroskaprófi eða matstæki. Slíkt mat getur farið fram með þátttöku foreldra. Ef niðurstöður athugana sýna að barn þarfnist sérkennslu/þjálfunar í leikskólanum eru gerðar ráðstafanir sem miða að því að kennslan geti farið fram innan ramma leikskólastarfsins.
|
TalmeinafræðingurTalmeinafræðingur Auðarskóla kemur reglulega til starfa í skólanum. Mál er varða málþroska og framburð heyra undir hans sérfræði. Forráðamenn barna, starfsmenn leikskóla, félagsþjónustu og heilsugæslu geta átt frumkvæði að athugun og greiningu á einstökum nemendum. Beiðnir til hans fara í gegnum deildarstjóra og/eða stjórnendur skólans.
SálfræðiþjónustaSkólasálfræðingur Auðarskóla kemur reglulega til starfa í skólanum. Mál er varða þroska og hegðun heyra undir hans sérfræði. Sálfræðiþjónusta (greining og ráðgjöf) gagnvart einstökum nemendum er gerð í kjölfar beiðni, sem þarf að gera á þar til gerðu eyðublaði sem fæst í skólanum. Forráðamenn barna, starfsmenn leikskóla, félagsþjónustu og heilsugæslu geta átt frumkvæði að athugun og greiningu á einstökum nemendum. Beiðnir fara í gegnum deildarstjóra og/eða stjórnendur skólans.
FélagsþjónustaSamningur er við Borgarbyggð um félagsþjónustu og þjónustu í barnaverndarmálum. Undir þann samning falla fjárhagsaðstoð, félagsleg ráðgjöf, félagsleg liðveisla og annar stuðningur við fatlað fólk og fjölskyldur fatlaðra barna, leyfisveitingar vegna daggæslu í heimahúsum og barnavernd. Fulltrúi félagsþjónusunnar er á hálfsmánaðarfresti til viðtals. Upplýsingar um komudaga eru á www.dalir.is
|