Æfingar eru alla jafna tvær í viku, annars vegar
á mánudögum hjá yngri hópunum og miðvikudögum hjá þeim eldri. Svo eru aukaæfingar
þegar verið er að samhæfa hópana fyrir uppákomur.
Kórastarfið
Kórastarfið er ætlað nemendum í elsta árgangi leikskólans og upp í 7. bekk. Aldursbilið er því mikið og því er kórnum stundum skipt í tvennt á æfingum. Kórinn kemur reglulega fram á hátíðum skólans og einnig á atburðum í sveitarfélaginu.
í kórunum eru rúmlega 20 nemendur en auk þeirra nýtur kórinn stuðnings píanónemanda. Tilgangur kórastarfsins er
fyrst og fremst að hafa gaman af auk þess sem nemendur þjálfast í að fara eftir
fyrirmælum, þjálfa einbeitingu, tilfinningu fyrir hryn, samhæfingu og ýmislegu fleira. Umsjónarmaður kórastarfsins er Íris Guðbjartsdóttir.