Eftir hádegið komu svo nokkrar skátastúlkur í heimsókn til okkar að gera góðverk. Þær skiptu sér á deildirnar og höfðu ofan af fyrir börnunum eins og skátum er lagið. Nokkrar brugðu sér út til að arfahreinsa beð fyrir utan skólann í lok dags. Við þökkum kærlega fyrir okkur og fallegu góðverkin:-)