Auðarskóli |
Á síðasta aðalfundi foreldrafélags Auðarskóla var ákveðið að breyta tímasetningu aðalfundanna og hafa þá í maí. Fráfarandi stjórn klárar samt skólaárið en þá getur svo ný stjórn tekið við strax í upphafi næsta skólaárs, eða frá 1. ágúst.
Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður því haldinn í grunnskólanum fimmtudaginn 23. maí kl. 17:30. ... Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 2. Fráfarandi stjórn gerir grein fyrir starfi síðasta starfsárs og fjárhagslegri stöðu félagsins. 3. Fulltrúar í skólaráði gera grein fyrir starfi síðasta starfsárs. 4. Lagabreytingar. 5. Kosningar. Stjórnarkjör, og kosning fulltrúa í fræðslunefnd og skólaráð ef þörf er á. 6. Önnur mál. Foreldrafélag Auðarskóla er sameiginlegt foreldrafélag fyrir leik- og grunnskóla. Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn mæti á aðalfund þar sem málefni fundarins varða alla foreldra. Vinsamlegast látið einhvern stjórnarmann vita ef þið komist EKKI. Stjórn foreldrafélags Auðarskóla Svanhvít Lilja Viðarsdóttir– formaður Björt Þorleifsdóttir – gjaldkeri Jónína Kristín Guðmundsdóttir – ritari Jón Egill Jónsson – meðstjórnandi Hafrún Ösp Gísladóttir- meðstjórnandi Comments are closed.
|
Á næstunni
|