Karellen í leikskólann

admin Fréttir

Nú er mánuður liðinn síðan Karellen var tekið upp í leikskólanum. Karellen er fyrsta kerfið sinnar tegundar í heiminum sem býður upp á heildarlausnir fyrir leikskóla. Það er skráningar- og samskiptaforrit sem auðveldar öll samskipti og gerir skráningar skilvirkari. Í gegnum Karellen fá foreldrar aðgang að helstu upplýsingum varðandi barnið sitt; mætingar, matar- og svefnskráningar, veikinda – og leyfisskráningar, dagatal, matseðil skólans, myndir og fleira.

Við starfsfólk leikskólans erum sérlega ánægð með Karellen og er reynsla okkar þessa fyrstu daga mjög góð. Þetta verður aðalsamskiptatækið okkar í framtíðinni og hvetjum við alla foreldra til að setja upp appið í símum sínum þar sem það gerir allt svo miklu auðveldar. Alltaf er hægt að fara inn á Karellen á vafrastiku og þá er það vefslóðin my.karellen.is. Ef foreldrar komast ekki inn á sínum aðgangi í Karellen, vinsamlegast látið okkur þá vita og við björgum málunum. Takk foreldrar fyrir samvinnuna þessa fyrstu daga. 
Með ósk um gott haust.

Kveðja, starfsfólk leikskólans.