Auðarskóli
  Auðarskóli
  • Forsíða
  • Um skólann
    • Skóladagatal
    • Staðsetning (kort)
    • Símar/gjaldskrár/eyðublöð
    • Starfsfólk
    • Skipurit
    • Stefnur og áætlanir >
      • Sýn skólans
      • Eineltisáætlun
      • Innra matsáætlun
      • Áfallaáætlun
      • Endurmenntun
      • Jafnréttisáætlun
      • Forvarnir
      • Læsisstefna
      • Skólasóknaráætlun
      • Rýmingaráætlun
    • Stoðþjónusta
    • Foreldrafélagið
    • Nefndir og ráð
    • Mötuneyti
    • Myndir
  • Grunnskóli
    • Skólareglur
    • Skólaakstur
    • Nám og kennsla >
      • Áherslur 2020-2021
      • Viðmið.stundarskr.
      • Heimanám
      • Að útskrifast fyrr
    • Námsmat
    • Námskrá
    • Samstarf
    • Hagnýt atriði >
      • Bæklingur
      • Félagsstarf
      • Foreldrasamstarf
      • Vinaliðar
      • Skólabókasafn
      • Skólavistun
      • Leyfi nemenda
      • Öryggismál
      • Móttaka nemenda
    • Skógrækt Auðarskóla
  • Leikskóli
    • Skóladagatal
    • Skólaakstur
    • Vistunarreglur
    • Skipulag >
      • Dagskipulag
      • Mánaðarskipulag
    • Úr námskrá >
      • Áherslur 2019 - 2020
      • Námskrá
      • Orðaspjall
      • Samstarf
      • Aðlögun
      • Útikennsla
      • Lubbi
      • Vináttuverkefni
      • Þróunarstarf
    • Hagnýt atriði >
      • Reglur við mikla undirmönnun
      • Afmæli
      • Fatnaður og útivera
      • Sérfræðiþjónusta
      • Dóta- og litadagar
      • Söngvasafn
      • Öryggismál
    • Foreldrahandbók
  • Tónskóli
    • Verklagsreglur
    • Námsfyrirkomulag
    • Hagnýt atriði
    • Hljómlistarsjóður
  • Útgáfa

Forseti Íslands í Auðarskóla

8/12/2017

 
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og kona hans, Eliza Reid, ásamt fylgdarliði, komu í opinbera heimsókn í Dalina 6. og 7. desember 2017.  

Þau byrjuðu heimsóknina á hjúkrunarheimilinu Fellsenda um þrjúleitið miðvikudaginn 6. desember.  Þaðan fóru þau svo að Erpsstöðum þar sem þau fræddust um starfsemina þar og því næst kynntu þau sér ostagerðina í MS í Búðardal.  Að þessu loknu var opinn fundur í Leifsbúð um framtíð ferðaþjónustu í Dölum. Kynnt voru áform um uppbyggingu í Ólafsdal, Vínlandssetur og söguhringurinn um Fellsströnd og Skarðsströnd.  Í lok kynninganna var gestum boðið upp á kaffiveitingar.  Forsetahjónin enduðu svo fyrri dag heimsóknar sinnar á Byggðasafni Dalamanna á Laugum þar sem Valdís Einarsdóttir safnvörður tók á móti þeim.

Fimmtudaginn 7. desember byrjuðu forsetahjónin á ferð fyrir strandir eins og við heimamenn köllum það en það er hringurinn sem er farið að tala um sem "Gullna söguhringinn", hringurinn fyrir Fellsströnd, Skarðströnd og um Svínadalinn.

Um 11:40 mættu þau svo í Auðarskóla.  Þau byrjuðu á leikskólanum þar sem þau heilsuðu leikskólabörnum.  Fyrst
 fór hann og kíkti á litlu krílin á Dvergahlíð þar sem þau störðu á hann stórum augum.  Svo kíkti hann inn í söngstund með eldri börnum á Tröllakletti og hlustaði á nokkur lög sem börnin sungu fyrir hann og tók svo lagið með þeim.  

Klukkan 12:00 fóru svo nokkrir fulltrúar nemendaráðsins og sóttu forsetann og fylgdarlið út á leikskóla og fylgdu þeim yfir í grunnskólann.  Þar tóku við þeim aðrir fulltrúar nemendaráðs sem fylgdu þeim inn í kennararýmið þar sem hann heilsaði nokkrum starfsmönnum.  Því næst var þeim fylgt inn í stofur þar sem nemendur skólans biðu spenntir eftir að hitta forsetann og heilsuðu þau hjónin flestum með handabandi.  Byrjað var í neðri byggingu skólans þar sem hann fór inn í þrjár stofur yngsta stigs og eina stofu miðstigs.  Þegar komið var upp ganginn inn í efri byggingu skólans voru enn aðrir fulltrúar nemendaráðs sem tóku á móti honum og fylgdu þeim inn í aðra stofu miðstigs og svo voru allir unglingarnir saman í einni stofu.  Nemendur elsta stigs sýndu líka stóru stundatöfluna í salnum og útskýrðu fyrir þeim hvernig stundataflan þeirra virkar, hvernig hún hefur fasta tíma og svo síbreytilega tíma með síbreytilegum hópum.

Heimsókn forsetans í Auðarskóla lauk svo með því að honum og fylgdarliði hans ásamt nemendum og starfsfólki var boðið í íslenska kjötsúpu í Dalabúð.  Nemendur voru ánægðir með heimsókn forsetans og brosið skein úr andlitum þeirra meðan á heimsókninni stóð.


Eftir heimsóknina í Auðarskóla fóru forsetinn og fylgdarlið að Eiríksstöðum og kynntu sér ferðir Dalamannsins Leifs heppna og því næst fóru þau að Kvennabrekku þar sem Guðni sjálfur afhjúpaði skilti um Árna Magnússon fræðimann og handritasafnara.  Þá fóru þau að Kringlu að skoða sauðfjárbúið hjá ungu bændunum þar.  Síðasta heimsóknin í þessari ferð var svo til eldriborgara á Silfurtúni.

Í lok dags var svo fjölskylduskemmtun í Dalabúð þar sem öllum íbúum gafst kostur á að hitta forsetahjónin ásamt því að sjá skemmtiatriði sem hinir ýmsu heimamenn, þar á meðal nemendur Auðarskóla, skemmtu gestum.  Að lokum tóku allir lagið "Hátíðarskap" og gæddu sér svo á hinum ýmsu afurðum úr Dölum.


Picture
Picture
Picture
Picture

Comments are closed.


    ​........... Á næstunni ......
    25. mars
    Árshátíð Auðarskóla.
    Heimferð kl. 13:00

    ​18. mars
    Skipulagsdagur
    í leik-og grunnskóla.
    ​Stóra upplestrar-keppnin í Laugagerði.


    23. febrúar

    Foreldraviðtöl

    18. febrúar
    Hefst kennsla samkvæmt hefðbundinni stundaskrá.

    17. febrúar

    Skipulagsdagur í grunnskóla

    25. janúar
    Skipulagsdagur

    12. og 14. október.

    Tónfundum aflýst

    ​8. október.
     
    Foreldraviðtöl í gegnum Teams forritið

    10.ágúst.

    Leikskólinn opnar klukkan 10:00

    17.-18. ágúst.
    Skipulagsdagar í grunn- og leikskólanum

    19.-21. ágúst.
    Skipulagsdagar í grunnskólanum


    Aðalnúmer: 4304757
    ​
    Leikskóli Tröllaklettur 4304712
    ​Leikskóli Dvergahlíð   4304713
    Tónlistardeild            4304756
    Mötuneyti Dalabúð    4304710

    ​


    .......... Eldri fréttir ..........

    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    October 2020
    September 2020
    August 2020
    July 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    June 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018
    August 2018
    June 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    December 2016
    November 2016
    October 2016
    September 2016
    August 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    October 2015
    September 2015
    August 2015
    June 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    November 2014
    October 2014
    September 2014
    August 2014
    June 2014
    May 2014
    April 2014
    March 2014
    February 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    October 2013
    September 2013
    August 2013
    June 2013
    May 2013
    April 2013
    March 2013
    February 2013
    January 2013
    December 2012
    November 2012
    October 2012
    September 2012
    August 2012
    July 2012
    June 2012
    May 2012
    April 2012
    March 2012
    February 2012
    January 2012
    December 2011
    November 2011
    October 2011
    September 2011
    August 2011
    June 2011
    May 2011
    April 2011
    March 2011

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.