Auðarskóli |
Kæru nemendur og foreldrar.
Nemendur 8.bekkjar, ásamt þeim Lily og Martin, hafa fræðst lítillega um Tryggva Magnússon teiknara og skoðað myndir eftir hann. Þau unnu blýantsteikningar af jólasveinum/jólakettinum og afraksturinn má sjá í Samkaupum. Myndirnar fá að hanga þar yfir hátíðarnar. Bestu kveðjur, María. Jólatónleikum tónlistardeildarinnar, sem vera áttu kl. 17.00 í dag, verður frestað vegna veðurs til 14.01.2016.
Skólastjóri Vefsíða Auðarskóla er greinilega mikið notuð. Samkvæmt yfirliti af vefsvæðinu, sem mælir umferð og heimsóknir á síðuna, eru daglegar flettingar á síðunni að rokka til og frá á bilinu 200 - 800. Meðaltalið síðastliðinn mánuð er því um 400 flettingar á dag sem gera 12.000 flettingar á mánuði. Miðað við þennan fjölda og niðurstöður úr innra mati skólans þar sem fram kemur að foreldrar eru ekki duglegir að nota heimasíðuna, má reikna með að langflestir sem heimsækja vefsvæði Auðarskóla séu ekki hluti að skólasamfélaginu. Heimasíðan er stútfull af gagnlegum upplýsingum sem nýtist öllum landsmönnum og það kemur fram í aðsókninni.
Í raun eru vefsvæðin þrjú sem birta upplýsingar um skólastarf Auðarskóla. Það er "heimasíðan" sjálf með allar almennar upplýsingar og svo tveir námskrárvefir fyrir grunn- og leikskóladeildir. Námskrárvefirnir eru þeir fyrstu sem slíkir á landsvísu, þ.e. að námskrár skóla séu skrifaðar beint á vef í stað pappírs. ![]() Á mánudaginn 14. desember stendur foreldrafélagið fyrir hinni árlegu piparkökuskreytingu. Við byrjum klukkan 17:00 í kaffisalnum í Dalabúð. Foreldrafélagið útvegar piparkökurnar og glassúr. Reynum að redda sem flestum litum í glassúrinn en það er velkomið að koma með fleiri liti. Vinsamlegast komið með ílát til að taka kökurnar með heim í. Kveðja Stjórn foreldrafélags Auðarskóla Mánudaginn 7. desember var hinn árlegi jólaföndursdagur í grunnskóladeild Auðarskóla. Unnið var á hverju stigi fyrir sig og einungis unnið í jólaföndri fram að hádegi.
Elsta stig föndraði gluggaskraut sem hefur raðast í efri gluggana í þeirra stofum og víðar. Miðstig var að skreyta krukkur, búa til súkkulaðiskálar, origami o.fl. Yngsta stig skreyttu líka krukkur og perluðu jólamyndir. Einnig notuðu margir tímann í að skreyta jólakortapokana sína og einhverjir byrjuðu að föndra jólakort. Skemmtilegur dagur í uppbroti. Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi fyrir allt landið vegna óvenju slæmrar veðurspár.
Vegagerðin gerir ráð fyrir að loka veginum um Bröttubrekku kl. 16 í dag og um Svínadal kl. 17. Gera má ráð fyrir að lokað verði til kl. 15 á morgun þriðjudag. Íbúar Dalabyggðar eru hvattir til þess að gæta að lausamunum, fylgjast með útvarpsfréttum og halda sig heima eftir því sem kostur er meðan veðrið gengur yfir. Starfsemi Auðarskóla verður með eftirfarandi hætti í dag: - Heimakstur skólabíla verður kl. 14:10 - Grunnskóladeild starfar til kl. 15:10 eins og venjulega. - Leikskóladeild lokar kl. 16:00 eða klukkustund fyrr en venjulega. Lengd viðvera grunnskólabarna lokar kl. 16:00 eða klukkustund fyrr en venjulega. Foreldrar eru beðnir að fylgjast með tilkynningum í útvarpi, tölupósti og SMS-skilaboðum í fyrramálið varðandi skólahald í Auðarskóla á morgun þriðjudag. Sveitarstjóri Inntaka 12 mánaða barna á leikskólann hófst í byrjun október og hefur gengið vel. Framkvæmdir á leikskólalóðinni vegna þessa eru komnar á góðan rekspöl en þeim er ekki lokið. Þá eru ýmsar breytingar á skipulagi innra starfsins að taka á sig mynd í kjölfar þessara breytinga. Búðast má við að það taki leikskólann nokkra mánuði í viðbót að aðlaga starfsemi sína að fullu að þessum breyttu aðstæðum.
Nokkrar mannabreytingar eru fyrirhugaðar um áramótin í leikskólanum og þörf á nýjum starfsmönnum. Nú er í gangi auglýsingarferli þar sem auglýst er eftir leikskólakennurum til starfa. Ef ekki fæst starfsfólk með tilskilin réttindi kemur til greina að ráða ófaglært fólk sem áhuga hefur á því að vinna með börnum. Þeir sem hefðu áhuga á slíkri vinnu mega gjarnan koma þeim upplýsingum til Eyjólfs skólastjóra á netfangið eyjolfur@audarskoli.is . |
Á næstunni
|