Auðarskóli |
![]() Út er komin lokaskýrsla þróunarverkefnisins " Stærðfræði við skólaskil". Þróunarverkefnið er að öllu leyti unnið í Auðarskóla og fjallar um samstarf elsta árgangs leikskólans og yngsta árgangs grunnskólans. Samstarfið er byggt á stærðfræði að stórum hluta. Þróunarverkefnið fékk styrk frá Verkefna- og námsleyfasjóði Kennarasambands Íslands. Verkefnastjórar voru Jóhanna Sigrún Árnadóttir og Guðbjörg Hólm Þorkelsdóttir. Skýrslan í heild sinni hér. ![]() "Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn." Fyrir hönd Auðarskóla óska ég nemendum, aðstandendum og öðrum velunnurum skólans gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökkum fyrir mikinn hlýhug og farsæla samvinnu á árinu sem er að líða. Eyjólfur Sturlaugsson ![]() Sjórn félags Sauðfjárbænda í Dölum mætti í leikskólann síðdegis í dag. Tilgangur heimsóknarinnar var að færa leikskólanum 40.000 kr. að gjöf. Í máli Jóns Egils Jóhannssonar kom fram að gjöfin væri dóspeningur frá haustfagnaði þeirra frá því í október. Skólastjóri tók við gjöfinni og þakkaði fyrir hana fyrir hönd skólans. Námskrá leikskólans er nú komin út og er aðgengileg hér á vefsíðu skólans. Námskráin í heild sinni hér.
![]() Öryggisáætlun vegna ófærðar eða óveðurs hefur nú verið uppfærð. Bætt hefur verið inn áætlun ef veður versnar mikið á skólatíma og skólaakstur teppist. Einnig hefur verið aukið við önnur efnisatriði og þau gerð skýrari. Sjá hér. ![]() Nemendur 4. og 5. bekkjar hafa verið að læra um og kynnast sólkerfinu. Í stofunni hjá þeim hanga núna uppblásnir hnettir í loftnu sem eiga m.a. að auðvelda nemendum að muna röðina á plánetunum frá sólu. Því var alveg kjörið að tengja lestrarátak bekkjarins við þessa hangandi hnetti. Nemendur brugðu því á það ráð, með kennara sínum, að mála litla fleti í bláum lit og festa þá í stofuloftið. Á þessa fleti safna nemendur síðan stjörnum og er nú að verða ansi stjörnubjart í stofunni. Þegar nemandi hefur náð 20 stjörnum er hann búinn að vinna sér inn bókamerki og við hverjar 10 stjörnur, sem bætast við, er gatað í viðeigandi reit á bókamerkinu. Þegar nemandi hefur lesið sér inn 40 stjörnur vinnur hann sér inn Halastjörnu sem einnig er fest á himininn í stofunni og príðir nú ein slík loftið. Átakið gengur vel og eru nemendur áhugasamir. Heildarfjöldi stjarna, sem bekkurinn er búinn að prýða stofuna með, er ríflega 300stk. kv Íris og Kiddi Í þessari fyrstu áfangaskýrslu Auðarskóla um sjálfsmat í skólanum er greint frá framkvæmd og niðurstöðum á tveimur þáttum, sem metnir voru skólárið 2010 – 2011. Skýrsla þessi er nokkuð seinna á ferðinni en til stóð samkvæmt áætlun vegna starfsmannaferðar sem farin var í Auðarskóla á starfsdögum í júní 2011. Við það seinkaði úrvinnslu úr gögnum vetrarins.
Í skýrslunni er gert grein fyrir matsþáttnum líðan annarsvegar og samvinnu, upplýsingastreymi og starfsanda hinsvegar. Einnig er hér í skýrslunni gerð grein fyrir sjálfsmatsáætlun skólans, forsendum matsins og þeirri aðferðarfræði og viðmiðum sem notuð er við matið. Skýrslan er unnin af þróunarstjórn skólans á grunni upplýsingaöflunar og umræðna starfsfólks. Skýrslan er opinber og verður kynnt á starfsmannafundum, í skólaráði og í fræðslunefnd sveitarfélagsins. Skýrslan verður höfð öllum aðgengileg á vefsíðu Auðarskóla undir hlekknum "útgáfa". Þróunarstjórn skólans skólaárið 2010 – 2011 skipaði: Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri, Freyja Ólafsdóttir grunnskólakennari, Björt Þorleifsdóttir deildarstjóri á leikskóla og Herdís Erna Gunnarsdóttir grunnskólakennari. Guðrún Kristinsdóttir deildarstjóri á leikskóla tók sæti Bjartar í september 2011 og kom að gerð skýrslunnar. Skýrslan er í heild sinni hér. |
Á næstunni
|