Auðarskóli |
![]() Fimmtudaginn 5. des. verður Kaffihúsakvöld Auðarskóla. Húsið opnar kl. 19:00 en skemmtunin byrjar kl. 19:30 í Dalabúð. Boðið verður upp á kakó og smákökur. Það verða skemmtiatriði sem eru samin og flutt af krökkum í 6.-10. bekk skólans. Einnig verður happdrætti með glæsilegum vinningum. Það kostar 600 kr. inn og einn happdrættismiði fylgir. Frítt er fyrir nemendur skólans og krakka undir skólaaldri. Einnig er hægt að kaupa fleiri happdrættismiða og kostar þá einn miði 100 kr. 10% af ágóða af Kaffihúsakvöldinu rennur til UNICEF. Tekið verður við pöntunum á dagatali Auðarsóla 2014, eins og í fyrra. Kveðja, nemendur Auðarskóla Niðurstöður samræmdra könnunarprófa í Auðarskóla fyrir haustið 2013 eru eftirfarandi:
4. bekkur Meðaleinkunn Meðalröðun Íslenska 6,1 55 Stærðfræði 6,9 66 7. bekkur Íslenska 7,0 58 Stærðfræði 6,4 43 10. bekkur Íslenska 5,8 50 Enska 6,7 42 Stærðfræði B 60 Meðalröðun á landsvísu er 50. ![]() Fimmtudaginn 28. nóvember n.k. kl. 18:00 stendur foreldrafélag Auðarskóla fyrir piparkökubakstri í Dalabúð. Nemendur og foreldrar leik- og grunnskólans koma saman; skera út deig, baka og skreyta piparkökur. Öllum verður séð fyrir deigi, en vinsamlegast komið með kökukefli, útskurðarmót og glassúr . ![]() Tveir drengir í unglingadeild Auðarskóla fengu þá hugmynd fyrir nokkrum vikum að safna fyrir UNICEF. Nemendafélagið hefur verið að skipuleggja söfnunina undanfarið. Þar sem mikið keppnisskap er í unglingahópnum og hann alveg til í að gera eitthvað flippað var ákveðið að nota tækifærið til slíks í leiðinni. Dalamenn og fleiri hafa verið mjög duglegir að styrkja félagsstarf nemenda þegar þeir safna fyrir skemmtunum og öðru og er hér þakkað kærlega fyrir það. Nemendur vonast til að það standi ekki á því núna þegar á að leggja öðrum lið. Svona fer söfnunin fram núna !
![]() Nemendur á yngsta stigi og elstu nemendur í leikskólanum skemmtu sér vel þegar þeir horfðu á leikritið um Ellu umferðartröll sem sýnt var í leikskólasalnum í dag. Leikritið fjallaði um tröllastelpu sem þurfti að bregða sér til byggða og hittir Benna. Þau lentu í ýmsum ævintýrum í umferðinni og þá kom í ljós hvað mikilvægt er að kunna umferðarreglurnar. Börn og fullorðnir geta fræðast meira um umferðina á vefnum www.ellaumferdartroll.is ![]() Í dag urðum við þess heiðurs aðnjótandi að fá heimsókn frá Heiðaskóla í Hvalfjarðarsveit. Það voru 25 starfsmenn grunnskóla-deildar, sem mættu á svæið. Gestirnir skoðuðu skólann, fræddust um skólastarfið og spjölluðu við nemendur og starfsmenn. Skólarnir tveir eru um margt líkir. Þeir eru báðir samreknir og eru staðsettir í sveitarfélögum sem hafa svipaðan íbúarfjölda. Þeir geta því örugglega notfært sér reynslu hvors annars í meiri mæli en þeir hafa hingað til gert. Hugsanlega er þessi heimsókn því upphafið meira og nánara samstarfi á ýmsum sviðum. Við þökkum góðum gestum heimsóknina í morgun. |
Á næstunni
|