Auðarskóli |
![]() Árlegt kaffihúsakvöld Auðarskóla verður fimmtudaginn 1. desember kl. 19:30 - 21:30. Boðið verður upp á kakó, smákökur og skemmtiatriði. Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir 16 ára og eldri. Danssýning Auðarskóla verður föstudaginn 2. desember í Dalabúð og hefst hún kl. 12.00. Heimakstri verður seinkað og verður kl. 13. Allir hjartanlega velkomnir. ![]() Eins og undanfarin ár hefur kórinn verið að æfa í vetur. Nú er komið að fyrstu tónleikunum. Þeir verða á aðventuskemmtun á Fellsenda þann 27. nóv n.k. Skemmtunin hefst klukkan 14:00. Vona ég að sem flestir sjái sér fært að koma. Lögin sem við erum að æfa eru: Jólasveinar einn og átta Jólasveinar ganga um gólf Adam átti syni sjö Í skóginum stóð kofi einn Gefðu mér gott í skóinn Við kveikjum einu kerti á Við munum því syngja einhver af ofangreindum lögum. Með kveðju Íris ![]() Völuspá og Prumpuhóllinn Foreldrafélag Auðarskóla stendur fyrir tveimur leiksýningum frá Möguleikhúsinu sem sýndar verða í Dalabúð. Sýningar eru á skólatíma svo allir nemendur eiga kost á að sjá þær. Fyrri sýningin er Völuspá eftir Þórarinn Eldjárn og er ætluð 6. – 10. bekk. Hún verður sýnd föstudaginn 18. nóvember kl. 11. Völuspá Þórarins byggir á hinni fornu Völuspá og veitir sýn inn í hugmyndaheim heiðinnar goðafræði. Þar segir m.a. frá fróðleiksfýsn Óðins, græðgi í skáldamjöðinn, forvitni hans um nútíð og framtíð, Fenrisúlfi, Baldri, Loka, Hugin og Munin og ótal fleiri persónum. Síðari sýningin er Prumpuhóllinn eftir Þorvald Þorsteinsson og er ætluð 1. – 5. bekk grunnskólans og börnum á leikskólaaldri. Sú sýning verður þriðjudaginn 22. nóvember kl. 14. Prumpuhóllinn fjallar um Huldu sem er nýflutt úr borginni og upp í sveit. Þegar hún fer í feluleik með Halla bróður sínum villist hún og ratar ekki heim. Henni líst ekkert umhverfið þar sem allt er framandi. Við sérkennilegan hól hittir hún Steina, kátan tröllastrák. Aðgangur er ókeypis. Foreldrar og forráðamenn eru velkomnir. Möguleikhúsið Foreldrafélag Auðarskóla ![]() Mánudaginn 14. nóvember er starfsdagur og þann 15. nóvember eru foreldraviðtöl í grunnskóladeild skólans. Þessa tvo daga er ekki kennsla og ekki skólaakstur. Ekki er heldur kennsla í tónlistardeild skólans en leikskólinn er opinn eins og venjulega. Foreldrar mæta til viðtals hjá umsjónarkennurum með börnum sínum en aðrir kennarar og skólastjórnendur verða einnig til viðtals. Tónlistarkennarar vilja einnig gjarnan hitta foreldra nemenda í tónlistarnámi. Nám í grunnskóla- og tónlistardeild hefst svo aftur samkvæmt stundarskrá miðvikudaginn 16. nóvember. Skólastjóri 10. bekkur Íslenska Meðaltal úr prófi 5,39 Meðaltal raðeinkunnar 32.07 Samræmd grunnskólaeinkunn 23,21 Enska 4,82 20,43 16,79 Stærðfræði 4,57 29,47 21,67 7. bekkur Íslenska Meðaltal úr prófi 5,96 Meðaltal raðeinkunnar 40,79 Samræmd grunnskólaeinkunn 26,14 Stærðfræði 6,14 42,86 27,36 4. bekkur Íslenska Meðaltal úr prófi 5,93 Meðaltal raðeinkunnar 40,75 Stærðfræði 5,43 31,25 Raðeinkunn gefur til kynna hversu stórt hlutfall nemenda á landsvísu fær tiltekna einkunn og einkunnir þar fyrir neðan. Samræmd grunnskólaeinkunn er reiknuð frá 0 – 60 með meðaltal upp á 30 og er birt ef nemendafjöldi er 10 eða fleiri. ![]() Á dögunum kom nýtt hljóðkerfi í alrými skólans, sem jafnframt er félagsrými nemenda. Kerfið verður notað á uppákomum á vegum skólans; t.d. tónleikum og skemmtunum. Einnig nýtist kerfið í hléum eldri nemenda í skólanum til að hlusta á tónlist. Kerfið kemur einnig til með að verða nýtt í félagsstarfi skólans, t.d. þegar haldin eru diskótek. Á myndinni sjást tæknimenn nemendafélagsins við nýja hljóðkerfið. ![]() Nemendur 6. og 7. bekkjar hittast alltaf fyrstu þrjá tímana á föstudögum og vinna ýmis verkefni saman og er það hluti þróunarverkefnis, sem fellst m.a. í því að auka blöndun nemenda. Síðastliðinn föstudag voru nemendurnir önnum kafnir við að skera út andlit á grasker því Hrekkjavakan var 31. október. Hrekkjavaka er hátíðisdagur ættaður úr keltneskri trú. Vaninn er að skera út grasker og klæða sig í grímubúninga þann dag. Grasker sem voru skorin út voru notuð til að skreyta borð á bekkjarkvöldi bekkjanna sem haldið var síðastliðinn mánudag (hrekkjavökudaginn sjálfann). Myndir af öllu saman er að finna á myndasíðu skólans. Sjá http://www.flickr.com/photos/audarskoli/ |
Á næstunni
|