Auðarskóli |
Miðvikudaginn 16. október n.k. kemur hann Guðmundur Kári Þorgrímsson, sem við þekkjum flest hér í Dalabyggð, með hinseginfræðslu fyrir alla nemendur grunnskóladeildar Auðarskóla.
Hann mun svo einnig bjóða foreldrum og starfsfólki skólans á slíka fræðslu klukkan 17:00 þennan sama dag, í Auðarskóla. Guðmundur Kári er tvítugur og hefur verið með hinseginfræðslu í Reykjavík og á Akureyri undanfarna vetur. Akureyrarbær hefur boðið honum að koma síðastliðin þrjú ár með fræðslu fyrir alla 9. bekkinga í grunnskólum Akureyrar. Nú er hann að fara af stað með verkefni þar sem hann stefnir á að bjóða upp á hinseginfræðslu í grunnskólum landsbyggðarinnar sem víðast um landið. Fræðslan er hugsuð fyrir unglinga í 9. bekk, en hann hefur núna aðlagað fræsðluna fyrir fleiri árganga þannig að allir okkar grunnskólanemendur njóti hennar. Hún er létt, skemmtileg og fræðandi. Ásamt fræðilegum staðreyndum deilir hann reynslu sinni sem samkynhneigðum strák sem ólst upp í litlu bæjarfélagi úti á landi. Fræðslan er sett þannig upp að hún reiðir sig mjög mikið á þátttöku nemenda í lifandi og áhugaverðum umræðum í gegnum fræðsluna. Fræðslan tekur um eina klukkustund fyrir hvern hóp, þó aðeins mismunandi eftir virkni og áhuga hópsins. Niðurstaðan sem vonast er eftir, er að skapa lifandi og opna umræðu um hinseginleikann sem mun lifa. Að fólk geti talað um þetta málefni á uppbyggjandi, eðlilegri og einlægari máta. Fræðslurnar á Akureyri hafa gengið vel og segja kennarar grunnskólanna að mikil umræða hafi brotist út eftir fræðsluna og að umræðan um hinsegin samfélagið sé í heild sinni betra. Hér að neðan eru nokkrar umsagnir frá starfsmönnum Akureyrarbæjar: „Hinsegin fræðslan sem Guðmundur Kári hefur flutt fyrir unglinga í 9. bekk á Akureyri undanfarin ár nær mjög vel til þeirra. Frásögn hans er einlæg og fræðandi og hann er ófeiminn að svara spurningum unglinganna á hispurslausan hátt án þess að fara yfir strikið.“ – Forvarna- og félagsmálaráðgjafar á Akureyri „Gummi er svaka skemmtilegur og það er gott að spjalla við hann. Gott að fá ekki alltaf fullorðna til að koma og vera með fyrirlestur.“ – Nemandi í 9. bekk á Akureyri „Hann var mjög skemmtilegur. Flottur gaur. Svaraði vel, fór aldrei yfir strikið“. – Námsráðgjafi „Ánægð með Gumma, fyndinn og nær vel til krakkanna. Fjölbreytt og flott fræðsla.“ – Námsráðgjafi Við bjóðum Guðmund Kára hjartanlega velkominn til okkar hér í Dalabyggð og vonumst til að sjá sem flesta á fræðslunni hans klukkan 17:00 þann 16. október n.k. Þriðjudaginn 12. nóvember og fimmtudaginn 14. nóvember verða tónfundir hjá tónlistardeild Auðarskóla.
Nánari upplýsingar verða sendar út þegar nær dregur. Aðstoðarskólastjóri Nú er mánuður liðinn síðan Karellen var tekið upp í leikskólanum. Karellen er fyrsta kerfið sinnar tegundar í heiminum sem býður upp á heildarlausnir fyrir leikskóla. Það er skráningar- og samskiptaforrit sem auðveldar öll samskipti og gerir skráningar skilvirkari. Í gegnum Karellen fá foreldrar aðgang að helstu upplýsingum varðandi barnið sitt; mætingar, matar- og svefnskráningar, veikinda - og leyfisskráningar, dagatal, matseðil skólans, myndir og fleira.
Við starfsfólk leikskólans erum sérlega ánægð með Karellen og er reynsla okkar þessa fyrstu daga mjög góð. Þetta verður aðalsamskiptatækið okkar í framtíðinni og hvetjum við alla foreldra til að setja upp appið í símum sínum þar sem það gerir allt svo miklu auðveldar. Alltaf er hægt að fara inn á Karellen á vafrastiku og þá er það vefslóðin my.karellen.is. Ef foreldrar komast ekki inn á sínum aðgangi í Karellen, vinsamlegast látið okkur þá vita og við björgum málunum. Takk foreldrar fyrir samvinnuna þessa fyrstu daga. Með ósk um gott haust. Kveðja, starfsfólk leikskólans. |
Á næstunni
|