Auðarskóli |
Nemendur elsta stigs tóku þátt í smiðjuhelgi dagana 5. - 6. október sem haldin var á Kleppjárnsreykjum. Nemendur völdu sér smiðju og í boði var:
Á fimmtudaginn 18. október verður tónfundur í Auðarskóla. Hann verður eins og undanfarin skipti í efra holi grunnskólans og hefst klukkan 13:30.
Áætlaður er klukkutími fyrir nemendur til að láta ljós sitt skína við spilamennsku og söng. Við viljum góðlátlega benda fólki á að sitja út tónfundinn af virðingu við þá nemendur sem koma fram. Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður haldinn í grunnskólanum mánudaginn 22. október kl. 17:30.
... Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 2. Fráfarandi stjórn gerir grein fyrir starfi síðasta starfsárs og fjárhagslegri stöðu félagsins. 3. Fulltrúar í skólaráði gera grein fyrir starfi síðasta starfsárs. 4. Lagabreytingar. 5. Kosningar. Stjórnarkjör, og kosning fulltrúa í fræðslunefnd og skólaráð ef þörf er á. 6. Önnur mál. Mikilvæg málefni er varða alla foreldra/forráðamenn. Komin eru nokkur framboð í næstu stjórn en við tökum áfram við framboðum fram að aðalfundi. Foreldrafélag Auðarskóla er sameiginlegt foreldrafélag fyrir leik- og grunnskóla. Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn mæti á aðalfund þar sem málefni fundarins varða alla foreldra. Vinsamlegast látið einhvern stjórnarmann vita ef þið komist EKKI. Stjórn foreldrafélags Auðarskóla Jón Egill Jónsson – formaður Björt Þorleifsdóttir – gjaldkeri Jónína Kristín Guðmundsdóttir – ritari Guðrún Esther Jónsdóttir – meðstjórnandi Svanhvít Lilja Viðarsdóttir - meðstjórnandi
Á miðvikudaginn 10. október verður foreldraviðtalsdagur í grunnskóladeild Auðarskóla.
Enginn kennsla er þennan dag né heldur skólaakstur. Foreldrar munu fá sent frá umsjónarkennurum sinna barna hvenær dagsins þau eiga að mæta til viðtals. |
Á næstunni
|