Auðarskóli |
Auðarskóli og Silfurtún eru sammála um að samvera barna og eldri borgara sé eftirsóknarvert, gefandi og þroskandi fyrir báða aðila. Í ljósi þess hafa stofnanirnar ákveðið að taka upp aukið og skipulagt samstarf. Eftirfarandi vörður eru hugsaðar sem grundvöllur samstarfsins:
Leikskóli:
![]() Miðvikudaginn 24. október verður tónfundur yngri nemenda (1. - 6. bekkir) við tónlistarskólann. Fundurinn hefst kl. 14.30 og munu nemendur þá koma fram og spila fyrir hvern annan og gesti. Foreldrar og aðstandendur velkomnir. Fundurinn verður í tónlistarskólanum. Þann 30. október verður svo tónfundur fyrir 7. - 10. bekki einnig kl. 14.30 og með sama sniði. ![]() Frá því að Auðarskóli tók til starfa haustið 2009 hefur nám í tónlistardeildinni verið að þróast. Nokkrar breytingar hafa verið á samsettningu námsins og kennslu. Sem dæmi um slíkt má nefna að í dag er nám í tónfræði eitthvað sem allir nemendur stunda nú, en tónfærði var nánast ekki kennd árið 2009. Nemendur deildarinnar koma nú fram fyrir aðra helmingi oftar en áður í samspili eða einleik. Breyting er einnig á því hvaða hljóðfæri nemendur velja sér. Nú er algengast að læra söng, á píanó og á gítar. Árið 2009 var harmonika eitt algengasta hljóðfærið en þetta haust er enginn nemandi að læra á það hljóðfæri og er það miður. Breyting hefur einnig orðið á vali um heilt eða hálft nám. Árið 2009 voru örfáir nemendur í heilu námi; næstum allir völdu hálft nám. Nú velja næstum jafnmargir heilt og hálft nám. Vorið 2012 tók nemandi við deildina grunnpróf í hljóðfæraleik og var það fyrsti nemandinn til að gera það um langt árabil. Þetta skólárið stefna enn fleiri á grunnpróf og er það vel. Deild eins og tónlistardeild Auðarskóla þarf að hafa innanborðs metnaðarfulla nemendur sem sækjast eftir framvindu og framförum í námi sínu. Ofangreindar breytingar bera flestar vott um slíkt. Börnin á Álfadeild fóru út á Silfurtún í dag til að syngja fyrir heimilisfólkið. Það var mjög gaman og er ætlunin að fara þangað einu sinni í mánuði. Móttökurnar voru góðar en börnin voru pínu feimin. Sum þeirra þorðu samt sem áður að kynna sig fyrir fólkinu; sögðu frá því hvað þau heita, hvar þau eiga heima og hverjir foreldrar þeirra eru. Skemmtileg morgunstund hjá okkur!
![]() Börnin á Bangsadeild eru dugleg að leika sér úti og eru þau hraust og spræk. Um daginn fengu þau að leika sér í grasinu og þúfunum fyrir ofan íþróttavöllinn niðrí dal. Þau veltu sér fram og til baka og fannst það mjög skemmtilegt. Síðan var ferð haldið áfram og stillt upp fyrir hópmyndatöku. Ágætu foreldrar
Mánudaginn 8. október verður starfsdagur í Auðarskóla samkvæmt skóladagatali. Starfsfólk leik- og grunnskóla verður í starfs- og kynnisferð á Akranesi. Ekkert skólahald verður þann daginn. Skólahald hefst aftur samkvæmt áætlunum þriðjudaginn 9. október. Skólastjóri |
Á næstunni
|