Auðarskóli |
Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri
Ingibjörg Jóhannsdóttir fulltrúi foreldra Ingibjörg Anna Björnsdóttir fulltrúi foreldra Þórunn Björk Einarsdóttir fulltrúi foreldra Elínborg Eggertsdóttir fulltrúi annars starfsfólks Linda Traustadóttir fulltrúi kennara grunnskóla Guðrún Kristinsdóttir fulltrúi starfsmanna leikskóla Hlöðver S. Oddsson fulltrúi nemenda Stefán R. Kristjánsson fulltrúi nemenda ![]() Kartöfluuppskeran var betri í ár en síðastliðið ár hjá krökkunum á Álfadeild. Börn fædd 2006 tóku upp kartöflurnar og fengu með sér heim í soðið. Katrín matráður, sauð síðan restina og fengu allir glænýjar kartöflur með fiskinum sínum. Algjört lostæti. Þann 15. september var grænn dagur í leikskólanum. Flestir komu í einhverjum grænum fötum, það var föndrað með litinn og búnar til grænar vöfflur með grænum glassúr, sem allir borðuðu með bestu lyst. Næstkomandi mánudag 26. september er starfsdagur í Auðarskóla samkvæmt skóladagatali. Leikskóli, grunnskóli og tónlistarskóli verða lokaðir. Því er enginn skólaakstur þann daginn. Skólaakstur hefst svo aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 27. september.
Þann 27. september hefst akstur samkvæmt stundaskrá í íþróttakennslu á Laugum. Nemendur hafa nú, á fyrstu dögum skólaársins, kosið eftirfarandi til stjórnar í nemendafélagi sínu:
Angantý E. Guðmundsson 10. bekk Braga Gíslason 10. bekk Elínu H. Jóhannesdóttur 9. bekk Hlöðver I. Oddsson 8. bekk Stefán R. Kristjánsson 9. bekk Þórönnu H.Gilbertsdóttur 8. bekk Til vara voru eftirfarandi kosnir: Benedikt M.Finnsson 8. bekk Guðmundur Guðbjörnsson 9. bekk Guðbjartur R. Magnússon 10. bekk Formaður nemendafélagsins er kosinn í beinni kosningu allra nemenda í 8. - 10. bekk. Fjórir nemendur buðu sig fram til verksins og eftir spennandi kosningu var Bragi Gíslason 10. bekk kosinn formaður. Umsjónarmaður, af hálfu starfsmanna, með félagslífi nemenda í vetur verður Aldís E. Alfreðsdóttir. ![]() Síðast liðinn mánudag fóru nemendur 7. bekkjar í fjöruferð. Nemendur þurftu að undirbúa sig fyrir ferðina og var einn tíminn í upplýsingamennt notaður til þess. Nemendur reiknuðu sjálfir út klukkan hvað og hvaða dag mesta fjaran væri og var svo ákveðið í sameiningu að mánudagurinn 12. september eftir hádegi væri bestur til ferðarinnar. Nemendur áttu að koma klæddir samkvæmt veðri og svo var haldið niðrí fjöru. Farið var bæði í sandfjöruna og grjótfjöruna til að nemendur áttuðu sig á muninum. Nemendur fundu fullt af sýnum í dollurnar sínar t.d. smádýr og þang. Smá keppni var haldin um það hvaða hópur teiknaði flottasta fiskinn í sandinn og mátti skreyta myndina með hlutum úr fjörunni. Sýnin sem nemendur fundu var farið með upp í skóla þar sem þau verða skoðuð nánar. Myndir úr ferðinni eru nú komnar inn á myndasvæði skólans. Þær má líka finna á þessari slóð. ![]() Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður haldinn í grunnskólanum miðvikudaginn 21. September, kl. 20:00. Dagskrá · Venjuleg aðalfundarstörf · Lagabreytingar 9.gr. (eins og hún er núna) Þrjú deildaráð starfa í félaginu; leikskólaráð, grunskólaráð Búðardal og grunnskólaráð Tjarnarlundi. Deildaráð funda svo oft sem þurfa þykir. Deildaráð skulu koma saman til formlegs fundar eigi sjaldnar en tvisvar á skólaárinu með stjórn félagsins. Stjórnin undirbýr og boðar til þessara funda. Þar skulu rædd mál er varða markmið og starf foreldrafélagsins, starf foreldra í deildum og verkefni skólaráðs. Tillaga stjórnar að lagabreytingu á 9.gr Tvö deildaráð starfa í félaginu; leikskólaráð og grunskólaráð. Deildaráð funda svo oft sem þurfa þykir. Deildaráð skulu koma saman til formlegs fundar eigi sjaldnar en tvisvar á skólaárinu með stjórn félagsins. Stjórnin undirbýr og boðar til þessara funda. Þar skulu rædd mál er varða markmið og starf foreldrafélagsins, starf foreldra í deildum og verkefni skólaráðs. Stjórnin ![]() Leir 2 bollar hveiti 1 bolli salt 1 tsk. Cream of tartar (ekki nauðsynlegt) 2 msk. olía u.þ.b. 2 bollar heitt vatn matarlitur Aðferð: Öllu nema vatni blandað saman í skál, heitu vatni (gott að hita það í hraðsuðukatli) síðan hellt út í. Því næst er blandan hrærð og hnoðuð vel saman. Leirinn er best að geyma í lokuðu íláti eða plastpoka. Ef leirinn er of blautur og klístrast við hendur og borð, þá þarf bara að hnoða hann upp úr hveiti. Ef leirinn er of stífur, þá má lina hann með heitu vatni. Gangi ykkur vel og góða skemmtun! Starfsfólk leikskólans Tveir nemendur í Auðarskóla hafa nú birt á youtube hljóðritanir sínar eftir upptökur. Annarsvegar er það Árný Björk Brynjólfsdóttir sem syngur " Who Says" við undirleik Daða Nikulássonar: Slóð hér.
Hinsvegar er það Hlöðver Smári Oddsson sem syngur frumsamið lag sitt " No way - lonely" og spilar einnig á gítar. Slóð hér. ![]() Nú í vor samþykkti sveitarstjórn Dalabyggðar nýjar reglur sem gilda í skólaakstri. Reglurnar eru núna komnar á heimasíðu skólans og þær má finna á slóðinni:http://www.audarskoli.is/skoacutelaakstur1.html ![]() Nú í upphafi skólaársins taka gildi nýjar starfsreglur um meðferð agabrota. Reglurnar eru smíðaðar í kjölfar nýrra skólareglna. Þá hefur ástundunarkerfi skólans einnig verið endurskoðað. Allir nemendur í 6. - 10. bekk fá nú ástundunareinkunn. Allar breytingar á ástundun svo og öll agabrot eru nú send í tölvupósti heim til foreldra á hálfsmánaðar fresti. Búið er að kynna nemendum breytingarnar og í komandi námskynningum verða foreldrar upplýstir enn frekar. Reglurnar eru nú komnar á heimsíðuna á slóðinni: http://www.audarskoli.is/skoacutelareglur.html |
Á næstunni
|