Auðarskóli |
Næstu daga geta foreldrar skráð börn sín í tónlistardeild Auðarskóla. Áætlað er að kennsla í deildinni hefjist fimmtudaginn 29.ágúst. Kennarar við deildina eru þeir Ólafur Einar Rúnarsson og Jan Michalski. Verklagsreglur tónlistardeildar er að finna hér. Gjaldskrá tónlistardeildar er að finna hér. Umsóknarblað fyrir tónlistarnám er hægt að nálgast hér fyrir neðan, hjá umsjónarkennurum í skólanum og í tónlistardeildinni. ![]()
Miðvikudaginn 21. ágúst næstkomandi mæta nemendur með foreldrum sínum sem hér segir:
Kl. 09.50 Yngsta stig (nemendur fæddir 2004, 2005, 2006 og 2007) Kl. 10.10 Miðstig (nemendur fæddir 2001, 2002 og 2003) Kl. 10.30 Elsta stig (nemendur fæddir 2000, 1999 og 1998) Tekið er á móti nemendum og foreldrum á hverju stigi fyrir sig. Eftir samveru stigsins ganga umsjónarhópar til heimastofu með umsjónarkennurum í fyrstu kennslustundina. Á þessum fyrsta degi skólaársins er farið yfir ýmislegt sem viðkemur skólastarfi vetrarins; t.d. breytingar er varða hópaskiptingar, stundatöflur, námsmat og íþróttakennslu. Dagskráin tekur um það bil 60 mínútur. Skólastjóri Í dag 1. ágúst hófst nýtt skólaár í í Auðarskóla. Starfsfólk leikskólans mætti til starfa í morgun og hóf undirbúning. Fyrstu börnin mættu svo kl. 10.00. Skrifstofa grunnskólans hefur einnig opnað.
|
Á næstunni
|