Auðarskóli |
Ágætu foreldrar
Fimmtudaginn 19.júní næstkomandi er áætluð vinnustöðvun hjá félagi leikskólakennara (FL) hafi ekki náðst samningar fyrir þann tíma. Í leikskóla Auðarskóla er deildarstjóri Álfadeildar félagi í FL og leggur því niður vinnu þann daginn. Vegna þessa er deildin lokuð umræddan dag og ekki hægt að taka á móti börnum. Hjóladagur sem vera á 19.júni fellur einnig niður verði af vinnustöðvun. Þann 20. júní verður starfssemi leikskólans á ný með hefðbundnum hætti. með bestu kveðju Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri ![]() Nú eru komnar 60 myndir frá skemmtilegri og velheppnaðri sumarhátíð leikskólans. Myndirnar eru inni á myndasvæði skólans. Hér. Síðastliðinn vetur var ljósmyndun kennd í vali í elsta aldurshópnum. Hluti afrakstrarins er aðgengilegur á Flickrsvæði nemendanna. Lítið endilega inn og skoðið. https://www.flickr.com/photos/krakkalakkar
Fimmtudaginn 12. júní fer leikskólinn í sína árlegu sumarferð. Ferðaáætlunin er nú endanlega ákveðin. Farið verður norður á Strandir í fjöruna norður af Þorpum (ekki langt frá Hólmavík). Lagt verður af stað upp úr kl. 9:00.
Fyrsti áfangastaður er Sauðfjársetrið á Ströndum. Litið verður á safnið, skoðaðir heimalingar og hænur. Snæddir ávextir og salernisaðstaðan nýtt áður en farið verður í fjöruna. Mjög mikilvægt er að klæða sig eftir veðri, með auka sokka. Nesti, sem Katrín er svo væn að útbúa fyrir okkur; pizzasnúða, safa og ávexti, verður tekið með í bílana. Þegar komið er til baka verður farið í leiki á leikskólalóðinni. Inga Heiða ætlar að lána leikskólanum gæfa hesta; þá Fönix og Lubba, og verður teymt undir þeim börnum sem það vilja. Að leik loknum mun foreldrafélagið grilla fyrir okkur. Þó svo foreldrar komist ekki í ferðina er allir velkomnir í leik og grill. Reiknað er með að vera komin til baka milli kl. 13.00 og 13.30. Starfsfólk leikskólans |
Á næstunni
|