Það var glæsilegur hópur sem útskrifaðist úr leikskóla Auðarskóla miðvikudaginn 23. maí. Athöfnin fór fram í Fjallasal leikskólans að viðstöddum góðum gestum. Útskriftarnemarnir, alls níu talsins, fengu bók og blóm að gjöf frá leikskólanum. Framtíð þessara nemenda er björt og við óskum þeim öllum og aðstandendum þeirra innilega til hamingju með áfangann.
Skóladagatöl skólaársins 2018-2019 eru komin hér inn á vefinn.
Undir flipunum "Grunnskóli" & "Leikskóli" er efsti valkosturinn "skóladagatal". Sýning á verkum nemenda 10. bekkjar verður í Stjórnsýsluhúsinu frá og með deginum í dag og fram yfir kosningar.
Sýningin ber heitið ,,árstíðirnar fjórar" og áttu nemendur að túlka tré sem sýnir þær. Hvetjum alla til að kíkja við. Á þriðjudaginn 15. maí n.k. verða haldnir hinir árlegu vortónleikar tólistardeildar Auðarskóla. Tónleikarnir fara fram í Dalabúð klukkan 16:00.
Nemendur koma fram og sýna listir sínar og viljum við vinsamlega benda áhorfendum á að sitja út tónleikana af virðingu við flytjendur. |
........... Á næstunni ......25. janúar Skipulagsdagur Aðalnúmer: 4304757
|