Auðarskóli |
Á vorhátíð má gjarnan klæðast furðufötum í tilefni dagsins. Hafa ber þó í huga að hluti dagskrár er úti og því þarf einnig að klæða sig eftir veðri.
08.30 – 09.50 Leikið og spilað: Nemendur inni í umsjá umsjónarkennara. 09.50 – 10.10 Morgunmatur 10.10 - 11.40 Útileikir: Fimm stöðvar verða í gangi allan tímann við skólann: Fánaleikur – Krítlist – Fótboltakeila – Ratleikur – Stígvélakast. Nemendur fara að vild á milli leikstöðva. Bubble fótbolti verður frá kl. 10.30 – 11.20 á stóra íþróttavellinum fyrir nemendur 8. - 10. b. 11.30 – 11.50 Vítaspyrnukeppni. 10. bekkur keppir við starfsfólk á gerfigrasvellinum. 11.40 – 12.30 Grill. Foreldrafélagið sér um grillið. 12.30 Heimakstur. Foreldrar eru ávallt velkomnir á vorhátíðina 17.00 Skólaslit í Dalabúð
Auðarskóli hefur hlotið styrk úr Sprotasjóði að upphæð 500.000 kr. til að vinna að þróunarverkefninu " Opið áhugasviðsval" Verkefnið hófst sem tilraunarverkefni í ágúst 2013 en þetta skólaár hefur það verið formgert meira og því stillt upp sem formlegu þróunarverkefni. Verkefnastjóri þróunarverkefnisins er Linda Traustadóttir kennari.
Í stuttu máli er um að ræða tvo tíma á viku þar sem nemendur í 8. - 10. bekk geta valið sér, hver fyrir sig, viðfangsefni eftir áhuga. Verkefnin geta verið nánast af hvaða toga sem er, svo framalega sem kennarar geta á einhvern hátt annast aðstoð. Ákveðnu verklagi er síðan fylgt varðandi undirbúning, vinnu og skilum á verkefnum. Sum verkefni eru smá ein önnur stór í sniðum og taka nokkrar vikur. Helstu markmið verkefnisins eru: Að nemendur geti valið verkefni sem tengjast áhuga þeirra Að nemendur læri að þekkja áhugasvið sín. Að nemendur geti lært að vinna sjálfstætt á eigin ábyrgð. Að nemendur geti skipulagt og borið ábyrgð á eigin námi. Að nemendur geri sér grein fyrir hvernig þeir geti hagnýtt sterkar hliðar sínar á skapandi hátt. Um er að ræða afar opið námsfyrirkomulag þar sem hlutverk kennara er að vera á hliðarlínunni og aðstoða nemendur við að læra það sem þeim langar til. |
Á næstunni
|