
Skýrslan er hin fróðlegasta aflestrar og ljóst að staðan í Auðarskóla er góð, þótt margt megi bæta og laga.
Skýrsluna er að finna undir hlekknum "útgáfa". Smella hér.
Auðarskóli |
![]() Nú er komin út matsskýrsla um ytra matið sem fram fór í Auðarskóla í mars. Það eru matsaðilar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Mennta- og menningarráðuneytinu sem framkvæmdu matið og tóku saman skýrsluna. Ytra mat er lögbundið og skulu öll sveitarfélög sjá til þess að það sé framkvæmt í skólum þeirra. Skýrslan er hin fróðlegasta aflestrar og ljóst að staðan í Auðarskóla er góð, þótt margt megi bæta og laga. Skýrsluna er að finna undir hlekknum "útgáfa". Smella hér.
![]() Grunnskólamótið í glímu fór fram á Ísafirði helgina 14. og 15. april. Glímufélag Dalamanna fór með keppendur á grunnskólaaldri á mótið. Árangur nemenda úr Auðarskóla var góður og m.a. komið heim með einn meistaratitil en Matthías Karl Karlsson vann í sínum aldursflokki og er því grunnskólameistari stráka í 7. bekk. Árangur Auðarskóla var eftirfarandi: 7. bekkur, strákar: 1. sæti: Matthías Karl Karlsson 2. sæti: Guðmundur Kári Þorgrímsson 4. sæti: Einar Björn Þorgrímsson 7. bekkur, stelpur: 2. sæti: Stefanía Anna Vilhjálmsdóttir 8. bekkur, strákar: 3. sæti: Sindri Geir Sigurðsson 10. bekkur, strákar: 2. sæti (+60 kg): Guðbjartur Rúnar Magnússon 2. sæti (-60 kg): Guðlaugur Týr Vilhjálmsson 4. Sæti (-60 kg): Angantýr Ernir Guðmundsson 10. bekkur, stelpur: 3. sæti: Sunna Björk Karlsdóttir Í sveitaglímunni kepptu tvær sveitir og náðu eftirfarandi árangri: 2. sæti: 15-16 ára sveinar, Angantýr Ernir Guðmundsson, Guðbjartur Rúnar Magnússon og Guðlaugur Týr Vilhjálmsson. 3. sæti: 13-14 ára strákar, Einar B. Þorgrímsson, Guðmundur K. Þorgrímsson, Matthías K. Karlsson og Sindri Geir Sigurðsson. Keppendum úr Auðarskóla er hér óskað til hamingju með góðan árangur. This is your new blog post. Click here and start typing, or drag in elements from the top bar.
![]() Forvarnarfundur með foreldrum Á morgun miðvikudaginn 18. april mun Ásgrímur Jörundsson frá Staðarfelli funda með foreldrum nemenda. Hann mun segja frá starfsemi SÁÁ, og hvernig foreldrar geta áttað sig á breyttri hegðunn barna vegna neyslu. Annars hefur hann opið um hvað verður talað. Fundurinn, sem er opinn öllum foreldrum, verður kl. 20.00 í skólanum. Foreldrafélag Auðarskóla Þennan sama dag mum Ásgrímur vera með fyrirlestur fyrir nemendur í 7. - 10. bekk skólans. ![]() Hinn árlegi unglingadansleikur samstarfsskólanna á Vesturlandi verður haldinn þann 17. april í Dalabúð. Dansleikurinn byrjar kl. 07.30 og stendur til 10.30. Hljómsveitin Dísel heldur uppi fjörinu. Aðgangseyrir er kr. 1500. Sjoppa á staðnum. Nemendur í Auðarskóla þurfa að koma með aðgangseyri í skólann um morguninn og greiða umsjónarmanni félagslífs (Aldísi). |
........... Á næstunni ......12. og 14. október. Aðalnúmer: 4304757
|