Auðarskóli |
Tónfundir í tónlistardeild Auðarskóla verða dagana 25. - 26. mars. Þriðjudaginn 25. mars verða 1. - 4. bekkur í tónlistarskólanum frá kl. 14.30 - 15.10 og þann 26. mars verða 5. - 10. bekkur í efra rými grunnskólans frá kl. 14.30 - 15.10. Allir eru velkomnir á tónfundina.
![]() Stóra upplestrarkeppnin í Auðarskóla fór fram í gær. Það voru nemendur í 7. bekk skólans sem kepptu í tveimur umferðum. Sigurvegarar voru þau Erna Hjaltadóttir og Ólafur B. Indriðason og verða þau keppendur skólans í Stóru upplestrarkeppni samstarfsskólanna á Vesturlandi. Varamaður þeirra verður Sigrún Ó. Jóhannesdóttir. Myndin er af sigurvegurum þremur og formanni dómnefndar; Önnu Eiríksdóttur. Myndir frá þemadögum skólans 26. - 28. febrúar eru núna komnar inn á myndasvæði skólans. Sjá :http://www.flickr.com/photos/audarskoli/
Á öskudag lýkur kennslu kl. 12.20 í grunn- og tónskóladeild. Í framhaldinu er boðið upp á hádegismat í mötuneytinu. Heimakstur skólabíla hefst kl. 13.00. Foreldrar þurfa að hafa samband við skólabílstjóra, með nokkrum fyrirvara, ef börn þeirra verða eftir í Búðardal.
Skólastjóri |
Á næstunni
|