
![]() Út er komin skýrsla um ferð starfsfólks Auðarskóla til Skotlands vorið 2011. Í skýrslunni er heimsóknum í hina ýmsu skóla lýst og greint frá því markverðasta sem starfsfólk upplifði. Skýrslan geymir einnig fjölda mynda. Slóð hér.
![]() Námsvaka Auðarskóla er áheitasöfnun til styrktar unglingastarfi skólans. Nemendur 8.-10. bekkjar ætla að hafa sólarhrings námsmaraþon 24.- 25. janúar. Stíf dagskrá er en námsmaraþon gengur út á að læra. Uppsettri dagskrá þarf að fylgja og vinnulotur eru fráteknar fyrir bókarlærdóm. Heimilt er að nýta síma/tónhlöður til náms ef notuð eru heyrnatól. Í pásum má ekki trufla þá sem eru að læra en ..... gestum er velkomið að heilsa upp á alla. Allir eru hvattir til að koma og kíkja á námshestana, foreldrar, gestir og þeir sem hafa heitið á krakkana eru sérstaklega boðnir velkomnir. Ef einhver á eftir að heita á krakkana er það hægt að gera á áheitablöðum sem liggja frammi víðsvegar (Samkaup, KM ofl.) og líka í skólanum. Nú verður heilaorkan virkjuð ![]() Önnur áfangaskýrsla Auðarskóla um sjálfsmat í skólanum er nú komin á netið. Í skýrslunni er að finna niðurstöður úr könnun á námskrá og skipulagi skólastarfsins. Einnig umbótaáætlanir síðasta árs, hluta af niðurstöðum úr ytra mati og frá skólaþingi. Slóðin hér. Þann 02. janúar sátu allir starfsmenn leik- og grunnskóla námskeið á vegum samtakana Blátt áfram um kynferðislega misnotkun barna. Námskeiðið heitir Verndarar barna.
Megninmarkmið fræðslunnar er að styrkja starfsmannahópinn til þess að þekkja og greina kynferðislega misnotkun og að vernda börn gegn slíkri vá. Auðarskóli mun í kjölfar skólans setja sér skýrari reglur er varðar samskipti, fræðslu og viðbrögð er varða málefnið. |
........... Á næstunni ......25. janúar Skipulagsdagur Aðalnúmer: 4304757
|