Auðarskóli |
![]() Föngulegur hópur 8. - 10. bekkinga skellti sér í Borgarnes þann 26. janúar til þess að taka þátt í og fylgjast með undankeppni í Samfés. Tvö atriði frá skólanum tóku þátt, annarsvegar Gemlingarnir með þeim Angantý, Hlyni, Guðbjarti og Hlöðver Smára og hinsvegar Hlöðver Smári og Benedikt Máni með þær Guðrúnu Birtu og Elínu Huld í bakröddum. Skemmst er frá því að segja að öll stóðu þau sig með mikilli prýði og lentu Hlöðver, Benedikt, Guðrún og Elín í þriðja sæti með lagi og texta Hlöðvers; Tíminn. Heppnaðist ferðin frábærlega og voru nemendurnir skóla og byggðarlagi sínu til mikils sóma. ![]() Nú hefur umbótaáætlun er varðar líðan-hrós-aga í grunnskólanum verið sett á vefsvæðið. Áætlunin er unnin í beinu framhaldi af niðurstöðum úr sjálfsmati skólans er varða þessa þætti. Reiknað er með að meta þessa titeknu þætti aftur í nóvember. Umbótaáætlunina er að finna á þessari slóð hér. Samkvæmt skóladagatali á Auðarskóli bókaða viku fyrir nemendur í 7. bekk í skólabúðunum að Reykjum í Hrútafirði vikuna 16. - 20. janúar. Nemendur verða það með nemendum samstarfsskólana úr Borgarfirði og Hvalfjarðarsveit. Lögð er áhersla á að allir nemendur fari og njóti samveru við leik og störf. Umsjónarkennari fer með nemendum sínum.
Ferðaáætlun: Áætlað er að rúta fari á mánudagsmorgni kl. 10:30. Koma að Reykjum er áætluð milli 11:30 og 12:00. Það verður venjuleg kennsla á mánudagsmorgni þar til rútan fer. Brottför frá Reykjum á föstudag er áætluð kl. 11:30 eða eftir hádegismat, þannig að nemendur komist með skólabílum heim. Dagskrá: Megináhersla verður lögð á ferðir í fjöru, á byggðasafn, fjármálafræðslu, íþróttir og útiveru. Því þurfa nemendur m.a. að hafa með sér hlýjan útifatnað (hlífðarföt), stígvél, íþróttaföt og sundföt. Þá skiptast nemendur á við störf í borðstofu. Rétt er að benda nemendum á að í skólabúðirnar eru þeir komnir til að læra en þó með nokkuð öðru sniði en í venjulegum skóla. Mætingarskylda er í alla dagskrárliði. Þátttökugjald: Þátttökugjald á hvern nemenda skólaárið 2011-2012 er kr. 17.500. Auðarskóli greiðir kostnað fyrir nemendur; þ.e. kostnað við rútu og þátttökugjald. Hinsvegar verður þessa viku innheimt sem áður gjald í mötuneyti Auðarskóla og er gjaldið hugsað sem greiðsla fyrir fæði í skólabúðum. ![]() Nú hefur mest af því efni sem finnst hér á vefsvæði Auðarskóla verið uppfært, sett niður í kafla og gert að prentvænu efni. Um er að ræða starfsáætlun Auðarskóla fyrir 2011 - 2012. Skjalið hentar þeim sem vilja frekar lesa af pappír en af skjá en einnig hugsanlega þeim sem finnst betra að lesa efni af skjá skipulega uppsett í bókarformi. Þá er einnig hægt að hlaða efninu niður og geyma það. Starfsáætlunin sem er alls 50 blaðsíður finnst hér á þessari slóð. ![]() Nú er ný önn að hefjast í tónlistardeildinni og við þessi annaskipti gefst tækifæri til að breyta til. Hafi foreldrar áhuga á að auka eða minnka nám nemenda sinna þurfa þeir að hafa samband við tónlistarkennara sem allra fyrst. Einnig ef ekki er sótt eftir frekara námi í vetur. Hafi foreldrar ekki samband fyrir 13. janúar er litið svo á að nemandi verði í sama námi og hann var fyrir áramótin. Í nýjum verklagsreglum fyrir tónlistardeildina er skýrar kveðið á um námsleiðir og þeirri vinnu sem fylgir hverri leið. Það er mikilvægt að foreldrar geri sér grein fyrir því að nemandi í fullu tónlistarnámi getur í sumum tilvikum verið allt að tvær klukkustundir frá hefðbundnu skólastarfi vegna námsins; þ.e. 60 mín. í hljóðfæranámi, 30 mín. í tónfræði og svo af og til 30 mín. í samspilshópum. Vegna þessa er mikilvægt að foreldrar fylgist vel með hvað nemendur eru að missa úr námi í grunnskólanum og aðstoði börn sín við að vinna það upp. Vegna síaukinnar aðsóknar að tónlistardeildinni og vegna aukins umfangs deildarinnar inni í grunnskólanum hefur verið að myndast lítill biðlisti barna sem vilja komast í tónlistarnám. Nýjar verklagsreglur skýra með hvaða hætti skuli forgangsraðað við slíkar aðstæður. Á eftirfarandi vefslóðum eru annarsvegar verklagsreglur fyrir tónlistardeild Auðarskóla, sem samþykktar voru nú nýlega í sveitarstjórn Dalabyggðar og hinsvegar nýtt umsóknareyðublað fyrir tónlistarnám, sem byggir á nýjum verklagsreglum og nýrri gjaldskrá fyrir tónlistarnámið. Skólastjóri |
Á næstunni
|