Aðalfundur foreldrafélagsins

admin Fréttir

Aðalfundur foreldafélags Auðarskóla

Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður haldinn í grunnskólanum miðvikudaginn 21. september kl. 20:00.

Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Fráfarandi stjórn gerir grein fyrir starfi síðasta starfsárs og fjárhagslegri stöðu félagsins.
3. Fulltrúar í skólaráði gera grein fyrir starfi síðasta starfsárs.
4. Lagabreytingar.
5. Kosningar. Stjórnarkjör, og kosning fulltrúa í fræðslunefnd og skólaráð ef þörf er á.
6. Önnur mál.

Foreldrafélag Auðarskóla er sameiginlegt foreldrafélag fyrir leik- og grunnskóla. Foreldrar eru hvattir til að mæta.
Stjórn foreldrafélags Auðarskóla