Auðarskóli |
![]() Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður haldinn í grunnskólanum miðvikudaginn 21. September, kl. 20:00. Dagskrá · Venjuleg aðalfundarstörf · Lagabreytingar 9.gr. (eins og hún er núna) Þrjú deildaráð starfa í félaginu; leikskólaráð, grunskólaráð Búðardal og grunnskólaráð Tjarnarlundi. Deildaráð funda svo oft sem þurfa þykir. Deildaráð skulu koma saman til formlegs fundar eigi sjaldnar en tvisvar á skólaárinu með stjórn félagsins. Stjórnin undirbýr og boðar til þessara funda. Þar skulu rædd mál er varða markmið og starf foreldrafélagsins, starf foreldra í deildum og verkefni skólaráðs. Tillaga stjórnar að lagabreytingu á 9.gr Tvö deildaráð starfa í félaginu; leikskólaráð og grunskólaráð. Deildaráð funda svo oft sem þurfa þykir. Deildaráð skulu koma saman til formlegs fundar eigi sjaldnar en tvisvar á skólaárinu með stjórn félagsins. Stjórnin undirbýr og boðar til þessara funda. Þar skulu rædd mál er varða markmið og starf foreldrafélagsins, starf foreldra í deildum og verkefni skólaráðs. Stjórnin Comments are closed.
|
Á næstunni
|